Halldór Ásgrímsson undirr. CTBT samn.
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________
Nr. 072
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, undirritaði í dag samninginn um allsherjarbann við kjarnasprengingum í
tilraunaskyni (Comprehensive Test Ban Treaty) við hátíðlega athöfn í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna.
Samkvæmt samningnum skuldbinda aðildarríkin sig til að sprengja ekki kjarnavopn né framkvæma aðrar kjarnasprengingar
í tilraunaskyni innan yfirráðsvæða sinna.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 24. september 1996