Afhending trúnaðarbréfs í Páfagarði
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________
Nr. 034
Hinn 24. apríl s.l. afhenti Ólafur Egilsson, sendiherra, Jóhannesi Páli II. páfa, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Páfaríkinu með aðsetur í Reykjavík.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 25. apríl 1997