Framlenging humarvertíðar
Framlenging humarvertíðar
Ráðuneytið hefur í dag gefið út reglugerð um framlengingu humarvertíðar. Samkvæmt reglugerð þessari er síðasti leyfilegur veiðidagur yfirstandandi humarvertíðar 31. ágúst. n.k.
Jafnframt hefur ráðuneytið ákveðið að framlengja bann við tog- og dragnótaveiðum á svæðum út af Krísuvíkurbergi, á Selvogsbanka, í Háadýpi og Breiðamerkurdýpi. Þá verða humarveiðar áfram bannaðar austan línu sem dregin er suður frá Ingólfshöfða.
Sjávarútvegsráðuneytið
14. ágúst 1997
14. ágúst 1997