Stjórn Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
Nr. 18/1997
Í dag, miðvikudaginn 10. september, var stofnfundur Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. haldinn. Í stjórn hlutafélagsins voru þessir kjörnir:
Aðalmenn | Varamenn |
Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri | Kristín Guðmundsdóttir fjármálastjóri |
Sigurður Einarsson framkvæmdastj. | Einar Svavarsson framkvæmdastjóri |
Sveinn Hannesson framkvæmdastjóri | Gunnar Svavarsson framkvæmdastj. |
Þorsteinn Ólafsson viðskiptafræðingur | Hreinn Jakobsson forstjóri |
Örn Gústavsson framkvæmdastjóri | Jónína Bjartmarz lögfræðingur |
Að loknum stofnfundi var haldinn fyrsti fundur nýrrar stjórnar Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. Á honum skipti stjórnin m.a. með sér verkum og var Þorsteinn Ólafsson þar valinn formaður stjórnar en Magnús Gunnarsson varaformaður.
Reykjavík, 10. september 1997.