Hoppa yfir valmynd
16. desember 1997 Matvælaráðuneytið

Vátryggingaeftirlitið

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
Nr. 23/1997

    Með bréfi, dags. 9. desember sl, óskaði dómsmálaráðuneytið eftir því við viðskiptaráðuneytið að það hlutaðist til um að Vátryggingaeftirlitið aðstoðaði nefnd þá sem vinnur að endurskoðun skaðabótalaga og starfar samkvæmt 3. gr. l. nr. 42/1996 við útvegun upplýsinga.

    Fulltrúar ráðherra hafa síðan átt fundi með Sambandi íslenskra tryggingafélaga, Vátryggingaeftirlitinu og nefnd þeirri sem vinnur að endurskoðun skaðabótalaganna.

    Að loknum þeim fundum hefur það orðið niðurstaða ráðherra að óska eftir því að Vátryggingaeftirlitið taki saman upplýsingar um endanlegar bótafjárhæðir í tilteknum tjónum frá árinu 1993 sem nefndin hafði tilgreint.

    Reykjavík, 16. desember 1997.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum