Hoppa yfir valmynd
14. janúar 1998 Matvælaráðuneytið

Verðlagsstofa skiptaverðs - úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna. 14.01.98

Fréttatilkynning


Síðastliðið sumar tók Verðlagsstofa skiptaverðs til starfa í samræmi við lög nr. 13/1998, um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

Frá þeim tíma hefur úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna fjallað um 11 mál er borist hafa nefndinni. Samtök sjómanna skutu 7 málum til nefndarinnar og varða þau 7 skip. Verðlagsstofan hefur skotið 4 málum til nefndarinnar er varða 7 skip.

Í 3 málum var fjallað um síld, í 2 um ísfisk, í 2 um frosna rækju, í 2 um ísrækju, í 1 um hörpuskel og í 1 máli var fjallað um samningsumboð.

Úrskurðað var í 7 málum, samkomulag náðist í 2 málum, einu var vísað frá og málsaðilar náðu samkomulagi í einu máli.

Sjávarútvegsráðuneytið
14. janúar 1998

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum