Áki Ármann Jónsson settur veiðistjóri
Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra hefur sett Áka Ármann Jónsson til þess að gegna stöðu veiðistjóra til 31. maí næstkomandi.
Áki Ármann hefur starfað hjá veiðistjóraembættinu síðan 1. mars 1995 og hefur séð um uppbyggingu og rekstur veiðikortakerfisins. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1987 og B.S. prófi í líffræði frá Háskóla Íslands 1993. Eftir nám vann hann m.a. á Keldum við rannsóknir á sníkjudýrum í æðarfugli og fæðu æðarfugla, en hann hefur einnig unnið að uppsetningu og þróun gagnagrunna fyrir fyrirtæki og félagasamtök.
Fréttatilkynning nr. 8/1998
Umhverfisráðuneytið