Aukið norrænt samstarf um upplýsingatækni
Fréttatilkynning - Norðurlandaskrifstofa forsætisráðuneytis
Ráðherrar Norðurlanda á sviði upplýsingatækni tóku á samráðsfundi í Haga-höllinni í Stokkhólmi í dag, 20. mars, ákvörðun um að stofnað skuli til formlegs norræns samstarfs um upplýsingatækni. Myndað verði norrænt tengslanet milli þeirra ráðuneyta, sem bera ábyrgð á samræmingu á sviði upplýsingamiðlunar.
Eins og norrænt samstarf á öðrum sviðum mun samstarfið um upplýsingatækni grundvallast á samstarfi á Norðurlöndum, innan Evrópu og á grannsvæðum Norðurlanda. Megin markmið samstarfsins eru:
- að efla lýðræði
- að tryggja öllum aðgengi að upplýsingasamfélaginu
- að efla norræn tungumál og norræna menningu
- að ryðja brautina fyrir rafræn viðskipti
- að örva uppbyggingu tengsla meðal lítilla og meðalstórra fyrirtækja
Nú þegar er fyrir hendi þróað norrænt samstarf um upplýsingatækni á afmörkuðum sviðum. Ráðherrarnir leggja engu að síður áherslu á þörfina fyrir að efla samstarfið á þessu sviði, enda séu fyrir hendi möguleikar á að vinna hnitmiðað að málum sem ná til fleiri fagsviða.