Ár hafsins - yfirlýsing ríkistjórnar. 27.03.98
Ár hafsins
Yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands
Ríkistjórnin hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af ári hafsins. Í henni eru dregnar fram megináherslur Íslendinga er varða vernd vistkerfis hafsins og nýtingu lifandi auðlinda þess.
Yfirlýsingunni er m.a. ætlað að vera verkfæri fyrir þá sem halda fram málstað Íslendinga á alþjóðavettvangi. Þá verður henni komið á framfæri við erlenda fjölmiðla sem fjalla um þessi mál.
Yfirlýsingin sem er gefin út samtímis á íslensku og ensku hefur verið sett inn á heimasíðu sjávarútvegráðuneytisins og verður innan skamms aðgengileg á vef UNESCO um ár hafsins.
Sjávarútvegsráðuneytið
27. mars 1998
27. mars 1998