Umhverfisyfirlýsing sjávarútvegsráðuneytisins. 21.04.98
Umhverfisyfirlýsing sjávarútvegsráðuneytisins
Umhverfisyfirlýsing sjávarútvegsráðuneytisins hefur verið gefin út. Þar er að finna þær grundvallarreglur er varða umhverfismál sem ráðuneytinu er ætlað að starfa eftir. Við vinnslu yfirlýsingarinnar var leitað fanga í gildandi lögum og reglugerðum, tekið tilliti til alþjóðlegra samninga og einnig skuldbindandi og óskuldbindandi yfirlýsinga bæði af innanlands og alþjóðavettvangi.
Umhverfisyfirlýsing ráðuneytisins getur seint verið fullgerð, en miklu skiptir að auðvelt sé fyrir almenning í landinu og kaupendur íslenskra afurða að vita hvaða reglur í umhverfismálum eru hafðar í heiðri í ráðuneytinu og undirstofnunum þess.
Sjávarútvegsráðuneytið
21. apríl 1998