Skipun forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs. 28.05.98
Fréttatilkynning
Skipun forstöðumanns
Verðlagsstofu skiptaverðs
Ráðherra hefur í dag skipað Valtý Þór Hreiðarsson til að gegna embætti forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs frá 1. júní n.k. til næstu fimm ára. Jafnframt hefur ráðherra ákveðið að Verðlagsstofa skiptaverðs skuli staðsett á Akureyri.
Valtýr Þór Hreiðarsson er fæddur árið 1949. Hann er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1974 og MBA frá B.I. í Noregi 1996. Valtýr hefur undanfarin ár verið lektor í viðskiptagreinum við sjávarútvegs- og rekstrardeild Háskólans á Akureyri.
Auk Valtýs sóttu eftirtalin um stöðuna:
Elías Oddsson, Einar Jón Ólafsson, Friðrik Björgvinsson, Friðrik Sigurðsson, Guðmundur Ólason, Guðrún Á. Sigurðardóttir, Jóngeir H. Hlinason og Sigurður Þór Sigurðsson.
Sjávarútvegsráðuneytið
28. maí 1998
28. maí 1998