Málaskrárnefnd
Nefndin sér um þróun Málaskrár ráðuneyta sem er mjög mikilvægt kerfi fyrir starfsemi ráðuneyta. Hafin er uppsetning á kerfinu hjá sendiráðum Íslands erlendis. Aukin notkun kerfisins hjá ráðuneytum og sendiráðum gerir starfsemi þeirra og upplýsingamiðlun skilvirkari og stuðlar þannig að framkvæmd stefnunnar. Stöðugt er verið að vinna að endurbótum á kerfinu.