Dagskrá málþings um stjórnun opinberra stofnana við upphaf 21. aldar
Málþing um stjórnun opinberra stofnana við upphaf 21. aldar
Þann 3. desember næstkomandi verður haldið á vegum Íslandsdeildar Norræna stjórnsýslusambandsins (NAF-ÍS) og fjármálaráðuneytisins málþing um stjórnun opinberra stofnana við upphaf 21. aldar. Þingið er ætlað stjórnendum opinberra stofnana og öðrum er áhuga hafa á viðfangsefninu. Markmið þingsins er að fjalla um nýja stjórnunarhætti opinberra stofnana og ræða áhrif þeirra á rekstur og skipulag.
Málþingið verður haldið í Háskólabíói. Dagskráin hefst kl. 13.00 og stendur yfir til kl. 16:40. Þátttaka tilkynnist með tölvupósti til: [email protected] eða í síma 560-9340 fyrir 2. desember. Þátttökugjald er tvö þúsund krónur.
Dagskráin er sem hér segir:
13:00-13:10 | Setning málþingsins | Geir H. Haarde, fjármálaráðherra |
13:10-13:40 | Siðaskipti við stjórnun opinberra stofnana við upphaf 21. aldar? | Ómar H. Kristmundsson, formaður NAF-ÍS |
13:40-14:10 | Þáttur vinnustaðamenningar í árangri fyrirtækja og stofnana | Halla Tómasdóttir, starfsmannastjóri Íslenska útvarpsfélagsins |
14:10-14:40 | Er þjónustuvilji allt sem þarf? | Svafa Grönfeldt, lektor |
14:40-15:00 | Kaffihlé | |
15:00-15:30 | Stjórnendur á krossgötum | Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu |
15:30-16:00 | Eru stjórnendur ríkisins í stakk búnir til að takast á við breytt starfsumhverfi og aukna ábyrgð? | Gunnar Björnsson, skrifstofustjóri, fjármálaráðuneytinu |
16:00-16:40 | Umræður og samantekt fundarstjóra |
Fundarstjóri verður Sigurður Líndal, prófessor.