Dómsmálaráðherra setur í fjórar stöður héraðsdómara til 30. júní 2001
Dómsmálaráðherra hefur í dag, 18. janúar 1999, ákveðið að setja eftirtalda í stöður héraðsdómara til 30. júní 2001, samkvæmt heimild í 41. gr. dómstólalaga nr. 15/1998:
Ingveldur Einarsdóttir, lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis.
Ragnheiður Bragadóttir, aðstoðarmaður Hæstaréttardómara.
Júlíus B. Georgsson, settur héraðsdómari.
Þorgerður Erlendsdóttir, settur héraðsdómari.
Dómstólaráð mun taka ákvarðanir um starfsvettvang umræddra dómara.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
18. janúar 1999.
18. janúar 1999.