Nr. 019, 18. mars 1999:Jón Baldvin Hannibalsson afhenti trúnaðarbréf í Argentínu.
Fréttatilkynning
frá utanríkisráðuneytinu
Nr. 019
Jón Baldvin Hannibalsson sendiherra afhenti í gær, 17. mars 1999, Carlos Saul Menem forseta Argentínu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Argentínu með aðsetur í Washington D.C.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 18. mars 1999.