Nr. 024, 8. apríl 1999: Afhending trúnaðarbréfs Kornelíusar Sigmundssonar sendiherra í Helsinki.
Fréttatilkynning
frá utanríkisráðuneytinu
Nr. 024
Kornelíus Sigmundsson sendiherra afhenti í dag Martti Ahtisaari forseta Finnlands trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Finnlandi.
Kornelíus Sigmundsson er fyrsti sendiherra Íslands í Finnlandi sem fast aðsetur hefur þar í landi.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 8. apríl 1999.