Nr. 10/1999
Fréttatilkynning frá landbúnaðarráðuneytinu nr. 10/1999
Blaðamannafundur
í tilefni af
alþjóðlegum degi bændakvenna
15. október 1999
í tilefni af
alþjóðlegum degi bændakvenna
15. október 1999
Í tilefni af alþjóðlegum degi bændakvenna, 15. október, boðar landbúnaðarráðherra til blaðamannafundar í Borgartúni 6, föstudaginn 15. október n.k., kl. 10:00 f.h.
Á fundinum verður kynnt skýrslan "Markmið og framkvæmdaáætlun landbúnaðarráðuneytisins í jafnréttismálum" sem Anna Margrét Stefánsdóttir hefur unnið fyrir ráðuneytið og áform ráðuneytisins um aðgerðir í þeim efnum.
Í landbúnaðarráðuneytinu, 14. október 1999