Nr. 122, 13. desember 1999Afhending trúnaðarbréfs í Tékklandi
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________
Nr. 122
Föstudaginn 10. desember s.l. afhenti Kristinn F. Árnason, sendiherra, Vaclav Havel, forseta Tékklands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Tékklandi með aðsetur í Osló.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 13. desember 1999.