Nr. 014, 8. mars 2000. Fastafulltrúi Íslands hjá S.þ. verður starfandi forseti 8. - 22. mars 2000.
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________
Nr. 14
Þorsteinn Ingólfsson fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum sem kjörinn var einn af varaforsetum 54. allsherjarþingsins í september síðastliðnum hefur samþykkt tilnefningu Theo-Ben Guriab forseta 54. allsherjarþingsins um að vera starfandi forseti þingsins tímabilið 8. - 22. þessa mánaðar. Forsetinn sem er utanríkisráðherra Namibíu verður fjarverandi frá New York næstu fjórar vikur og er íslenski fastafulltrúinn annar af tveimur varaforsetum sem skipta með sér þessu tímabili sem starfandi forsetar.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 8. mars 2000.