Ár aldraðra 1999
Í þessari skýrslu framkvæmdastjórnar heilbrigðisráðuneytisins um alþjóðlegt ár aldraðra 1999 er getið helstu verkefna sem nefndin hefur beitt sér fyrir á árinu. Markmið Sameinuðu þjóðanna um málefni aldraðra hafa verið grundvöllur þessa starfs. Vegna þeirrar áherslu sem Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, lagði á víðtæka samvinnu, hefur mikill fjöldi fólks, félaga og stofnana komið að þessu verki og lagt málefninu lið. Fyrir það mikla og óeigingjarna starf flytur nefndin öllum bestu þakkir.