Nýr vefur samgönguráðuneytis
Opnaður hefur verið nýr vefur ráðuneytisins.
Markmið með vefnum er að auka þjónustu ráðuneytisins, gera upplýsingar um það aðgengilegri, og um leið vera vettvangur umræðu um samgöngumál í víðasta skilningi. Innbyggt í vefinn er kerfi fyrir umræður, þar sem gestir á vefnum geta komið sínum skoðunum á framfæri, og jafnframt tekið þátt í umræðunni. Þá er vefnum ætlað aukið hlutverk í þjónustu ráðuneytisins, en vefnum er ætlað að auka aðgengi almennings að ráðuneytinu og starfsfólki þess.