Heimsókn forsætisráðherra Nýfundnalands og Labrador
Heimsókn forsætisráðherra Nýfundnalands og Labrador
Brian Tobin forsætisráðherra Nýfundnalands og Labrador kemur hingað til lands í boði forsætisráðherra Davíðs Oddssonar síðar í dag og dvelur hér á landi þar til á sunnudag. Á meðan á dvöl hans stendur mun hann eiga fund með forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Þá mun hann verða viðstaddur brottför víkingaskipsins Íslendings frá Reykjavíkurhöfn á þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Davíð Oddsson og Brian Tobin munu eiga fund í Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg kl. 16 í dag. Fyrir fundinn gefst tækifæri til myndatöku.
Forsætisráðuneytið, 15. júní 2000