Nr. 071, 3. október 2000. Trúnaðarbréf afhent í Vín.
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________
Þórður Ægir Óskarsson, sendiherra, afhenti í gær, 2. október, Pino Arlacchi, yfirmanni Skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg, trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna þar í borg.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 3. október 2000.