Nr. 082, 26. október 2000.Stjórnmálasamband við El Salvador
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________
Í gær, 25. október, undirrituðu Þorsteinn Ingólfsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og José Roberto Andino Salazar, fastafulltrúi El Salvador hjá Sameinuðu þjóðunum, samkomulag um stofnun stjórnmálasambands milli Íslands og El Salvador.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 26. október 2000.