Ráðuneytið hefur staðfest nafn á nýtt sveitarfélag: Hörgárbyggð
Ráðuneytið hefur staðfest nafn á nýtt sveitarfélag sem varð til við sameiningu Glæsibæjarhrepps, Skriðuhrepps og Öxnadalshrepps. Nefnist sveitarfélagið Hörgárbyggð en sameiningin tók gildi 1. janúar sl.
Við sameininguna fækkaði sveitarfélögum í landinu um tvö og eru þau nú 122 talsins.