Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2001 Matvælaráðuneytið

Fundur sjávarútvegsráðherra Íslands og Færeyja. 05.02.01

Fréttatilkynning


Í dag var haldinn í Reykjavík hinn árlegi fundur sjávarútvegsráðherra Íslands og Færeyja. Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, fór fyrir íslensku sendinefndinni en Jørgen Niclasen, landsstjórnarmaður, fór fyrir þeirri færeysku.

Aðilarnir fóru yfir veiðar Færeyinga í íslenskri lögsögu á síðasta ári, og veiðar Íslendinga í færeyskri lögsögu á sama tíma.

Aðilarnir ræddu botnfiskveiðiheimildir Færeyinga í íslenskri lögsögu. Í framhaldi af því var ákveðið að færeyskum skipum yrði heimilt að veiða 5.600 lestir árið 2001, sem er sami heildarafli og á síðasta ári. Heimildir til lúðuveiða lækka úr 100 lestum í 80 lestir og eru þær bundnar við tímabilið 1. júní - 31. ágúst. Felldar eru niður sérstakar takmarkanir á keiluveiðum á þessu ári en sú ákvörðun verður endurskoðuð á næsta ári.

Rætt var um veiðar á uppsjávartegundum. Ákveðið var að halda veiðiheimildum í þeim óbreyttum. Innan færeysku lögsögunnar er Íslendingum því heimilt að veiða kolmunna, 2.000 lestir af annarri síld en þeirri norsk-íslensku og 1.300 lestir af makríl. Innan íslensku lögsögunnar er Færeyingum heimilt að veiða kolmunna og loðnu.

Ákveðið var að semja fyrir 20. júní n.k. um loðnuveiðiheimildir færeyskra skipa innan íslensku lögsögunnar á næstu vertíð. Miðað verður við að leyfður heildarafli verði sá sami og á yfirstandandi vertíð, eða 30.000 lestir, enda breytist forsendur ekki í verulegum atriðum.

Ráðherrarnir ræddu ennfremur skoðanir sínar á fiskveiðistjórnun og samvinnu innan alþjóðlegra stofnana. Áhersla er lögð á samvinnu innan fiskveiðisvæðastofnana eins og NAFO, NEAFC, NAMMCO og ICCAT.
Sjávarútvegsráðuneytið
1. febrúar 2001.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum