Nr. 008, 5. mars 2001 Samráðsfundur framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins með forsætisráðherra og utanríkisráðherra
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________
Nr. 008
George Robertson, lávarður, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, mun eiga fund með Davíð Oddssyni, forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni, utanríkisráðherra í Flugstöð Leifs Eiríkssonar síðdegis í dag. Aðalframkvæmdastjórinn hefur viðkomu á Íslandi á leið sinni vestur um haf.
Blaða- og fréttamönnum gefst kostur á að beina spurningum til framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins og forsætis- og utanríkisráðherra í kjölfar samráðsfundarins í dag.
Fulltrúum fjölmiðla er vinsamlega bent á að koma til skráningar í varðstofu lögreglu brottfararmegin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eigi síðar en kl. 16.00 í dag.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 5. mars 2001.