Nr. 009, 5. mars 2001 Þorsteinn Pálsson afhendir trúnaðarbréf í Grikklandi
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________
Nr. 9
Þorsteinn Pálsson sendiherra afhenti í dag, 5. mars 2001, Kostis Stefanopoulos, forseta Grikklands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Grikklandi með aðsetur í London.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 5. mars 2001.