Hoppa yfir valmynd
28. mars 2001 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samræmd próf í 10. bekk vor 2002

Til skólastjóra og
skólanefnda grunnskóla

Samræmd próf í 10. bekk vor 2002
    Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd lokapróf verði lögð fyrir í sex námsgreinum í 10. bekk vorið 2002, sbr. reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra lokaprófa í 10. bekk í grunnskólum nr. 414/2000 og aðalnámskrá grunnskóla frá 1999. Námsgreinar sem prófað verður úr eru: íslenska, danska, enska, náttúrufræði, samfélagsgreinar og stærðfræði.

    Að gefnu tilefni skal tekið fram að samræmd lokapróf eru valfrjáls fyrir nemendur, sbr. 1. og 2. gr. reglugerðar nr. 414/2000. Nemendur hafa val um hvaða samræmd próf þeir velja að þreyta en vakin er athygli á því að samfélagsgreinar og náttúrufræði eru skyldunámsgreinar í grunnskóla og nemendur geta ekki valið sig frá námi í þessum greinum.

    Prófgreinar og prófdagar í 10. bekk grunnskóla vorið 2002 verða sem hér segir:

    Íslenska mánudagur 22. apríl kl. 9.00-12.00
    Enska þriðjudagur 23. apríl kl. 9.00-12.00
    Danska miðvikudagur 24. apríl kl. 9.00-12.00
    Náttúrufræði föstudagur 26. apríl kl. 9.00-12.00
    Stærðfræði mánudagur 29. apríl kl. 9.00-12.00
    Samfélagsfræði þriðjudagur 30. apríl kl. 9.00-12.00

    Ákvörðun um prófdaga samræmdra prófa í 10. bekk vorið 2002 er tekin í samráði við Námsmatsstofnun (áður Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála) sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir síðar nánari leiðbeiningar um framkvæmd prófanna.

    Hafa samband

    Ábending / fyrirspurn
    Ruslvörn
    Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum