Hoppa yfir valmynd
7. júní 2001 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Verkefni um gerð fjölskylduvefs

Félagsmálaráðuneytið í samstarfi við Fjölskylduráð hefur nú ráðist í verkefni um gerð sérstaks fjölskylduvefs. Starfsmaður hefur verið ráðinn í sumar til að kanna hvort grundvöllur sé fyrir að koma slíkum vefi á laggirnar. Ef til framkvæmda kemur verður það markmið vefsins að auka aðgengi almennings að upplýsingum á netinu er varða málefni fjölskyldunnar. Þeir sem eru áhugasamir um fjölskylduvefinn eru hvattir til að hafa samband og geta sent tölvupóst á [email protected]


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum