Hoppa yfir valmynd
22. júní 2001 Innviðaráðuneytið

Fjármálaráðuneyti - Kaup á nýju fjárhags- og starfsmannahaldskerfi

Kaup á nýju fjárhags- og starfsmannahaldskerfi fyrir ríkið


Fréttatilkynning frá fjármálaráðuneyti 22. júní 2001
Nr. 23/2001

Fjármálaráðherra hefur ákveðið að gengið skuli til viðræðna við Skýrr hf um kaup á nýju fjárhags- og starfsmannahaldskerfi fyrir ríkið á grundvelli útboðs Ríkiskaupa í janúar sl. Ákvörðun þessi er byggð á tillögu stýrinefndar á vegum Ríkisbókhalds, sem er framkvæmdaraðili málsins fyrir hönd fjármálráðuneytisins. Kaup á þessum kerfum er veigamikill þáttur í því að styrkja stjórnun ríkisstofnana og efla rafræna stjórnsýslu eins og hvarvetna er nú stefnt að.

Í lok apríl s.l. var ákveðið að velja tvö af átta tilboðum til sérstakrar skoðunar samkvæmt ákvæðum útboðsskilmála. Hér er um að ræða tilboð Skýrr hf sem byggir á lausnum svokallaðs Oracle e-business suite og tilboð Nýherja hf sem byggir á grunni svokallaðra SAP-kerfa.

Fjárhags- og starfsmannakerfi beggja bjóðenda uppfylla mjög vel útboðskröfur. Vinnubrögð og efnistök starfsmanna beggja fyrirtækja sýndu að hvor aðilinn sem er væri líklegur til að skila verkinu með ágætum hætti. Í verðsamanburði kemur fram verulegur munur Skýrr hf í hag.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta