Hoppa yfir valmynd
28. júní 2001 Dómsmálaráðuneytið

AUGLÝSING um breytingar á Skoðunarhandbók

AUGLÝSING

um breytingar á Skoðunarhandbók, sbr. auglýsingu nr. 437 30. júní 1998.


Ráðuneytið hefur staðfest breytingar á Skoðunarhandbók er greinir nánar frá hver skuli vera framkvæmd skoðunar skoðunarskyldra ökutækja, sbr. 2. mgr. 16. gr. reglugerðar um skoðun ökutækja, nr. 378 29. júní 1998, sbr. auglýsingu um útgáfu Skoðunarhandbókar, nr. 437 30. júní 1998.
Breytingarnar eru frá 1. mars 2001.
Skráningarstofan hf. annast dreifingu breytingarblaða til faggiltra skoðunarstöðva og endurskoðunarverkstæða.
Þetta tilkynnist hér með.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 29. mars 2001.
F. h. r.
Björn Friðfinnsson.
Ólafur W. Stefánsson.

    Hafa samband

    Ábending / fyrirspurn
    Ruslvörn
    Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum