Auglýsing um niðurfellingu skipulagsskráa fyrir atvinnurekandi sjálfseignarstofnanir.
Með vísun til 1. mgr. 50. gr. laga um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur nr. 33/1999, hefur dómsmálaráðherra fellt úr gildi skipulagsskrár fyrir eftirtaldar stofnanir, þar sem nýjar samþykktir fyrir þær hafa verið skráðar á sjálfseignarstofnanaskrá Hagstofu Íslands í samræmi við lög nr. 33/1999.
Nr. í Nr. í B-deild
sjóðaskrá Heiti Stjórnartíðinda
1201 Þjónustumiðstöð bókasafna 297/1978
1356 Íslenska óperan 95/1989
1433 Sjálfseignarstofnun Verslunarráðs
Íslands um viðskiptamenntun 582/1998
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 11. janúar 2001.
F. h. r.
Jón Thors.
Fanney Óskarsdóttir.