Hryðjuverk í Bandaríkjunum
Frétt nr.: 24/2001
Yfirlýsing frá ríkisstjórn Íslands
In EnglishRíkisstjórn Íslands lýsir yfir þungum harmi vegna þeirra hryllilegu hryðjuverka sem framin hafa verið gegn bandarísku þjóðinni í dag. Íslendingar hafa með skelfingu og hluttekningu fylgst með þessum óhugnanlegu árásum sem kostað hafa líf fjölda saklausra borgara.
Ríkisstjórn Íslands fordæmir þennan huglausa verknað og vottar ríkisstjórn Bandaríkjanna og bandarísku þjóðinni dýpstu samúð.
Í Reykjavík, 11. september 2001.