Hoppa yfir valmynd
18. september 2001 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norræna skólaíþróttanefndin - Norræna skólahlaupið 2001

Til íþróttakennara grunn- og framhaldsskóla frá norrænu skólaíþróttanefndinni

Norræna skólahlaupið 2001

"Norræna skólahlaupið" mun fara fram á öllum Norðurlöndunum á tímabilinu 20. september til 10. desember n.k. Verður þetta í 17. skiptið sem Íslendingar taka þátt í þessu samnorræna hlaupi en allt að því helmingur nemenda í grunnskólum landsins hafa hverju sinni tekið þátt í hlaupinu.

Þó að þess hafi sérstaklega verið getið hér að grunnskólar hafi staðið sig vel í hlaupinu til þessa, þá er þess vænst að framhalds- og sérskólar verði nú með af krafti og áhuga, en nokkuð hefur á það skort í fyrri hlaupum.

Með Norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að æfa hlaup og aðrar íþróttir reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.

Er því hér hvatt til þess að allir skólar verði með í Norræna skólahlaupinu 2001 en þátttakendur geta valið hve langt þeir hlaupa þ.e. 2.5 km, 5 km eða 10 km.

Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og einnig hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri, og heildarúrslit verða birt í fjölmiðlum og send skólum landsins. Það skal undirstrikað að hér er fyrst og fremst stofnað til hollrar hreyfingar en ekki keppni, og áhersla á það lögð að allir verði með.

Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins hefur styrkt útgáfu viðurkenningarskjala á myndarlegan hátt og samstarfsaðili að þessu verkefni er einnig Íþróttakennarafélag Íslands.

Allar frekari upplýsingar um Norræna skólahlaupið 2001 er að fá hjá fulltrúa Íslands í Norrænu skólaíþróttanefndinni, Reyni G. Karlssyni, deildarstjóra í menntamálaráðuneytinu.


Með von um góðan árangur.
Norræna skólaíþróttanefndin.

(September 2001)

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum