Dagpeningar starfsmanna á ferðalögum innanlands nr. 5/2001
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
1. |
Gisting og fæði í einn sólarhring |
kr. |
12.000 |
2. |
Gisting í einn sólarhring |
" |
7.000 |
3. |
Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag |
" |
5.000 |
4. |
Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag |
" |
2.500 |
Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.
Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins.
Reykjavík, 27. september 2001
Ferðakostnaðarnefnd
Ferðakostnaðarnefnd