Fundur dómsmálaráðherra Norðurlanda og Eystrasaltslanda
Fundur dómsmálaráðherra Norðurlanda og Eystrasaltslanda.
Haldinn í Eistlandi, 2. nóvember 2001.
Fréttatilkynning
Nr. 38/ 2001
Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, sækir fund dómsmálaráðherra Norðurlanda og Eystrasaltslanda, sem haldinn er í Tallinn, Eistlandi, 2. nóvember. Þetta er annar sameiginlegur fundur dómsmálaráðherra Norðurlanda og Eystrasaltslanda, en sá fyrsti var haldinn hér á landi í nóvember árið 1999. Með ráðherra í för er Björn Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri.
Á fundinum verður meðal annars fjallað um baráttuna gegn hryðjuverkum, aðgerðir gegn verslun með konur og kynlífsþrælkun og upplýsingatækni í réttargæslukerfinu. Einnig verður fjallað um samstarf Norðurlanda og Eystrasaltslanda á sviði dómsmála og farið yfir úttekt á þeirri samvinnu sem þegar er til staðar með hliðsjón af niðurstöðum fundarins á Íslandi 1999.
Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
1. nóvember 2001.
1. nóvember 2001.