Jón Egill Egilsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Sviss
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________
Nr. 119
Jón Egill Egilsson sendiherra afhenti í dag, föstudaginn 23. nóvember 2001, Moritz Leuenberger, forseta Sviss, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Sviss með aðsetur í Berlín.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 23. nóvember 2001.