Vegna skipulagsbreytinga eru lausar til umsóknar eftirtaldar stöður í félagsmálaráðuneytinu
Lausar stöður
- Staða skrifstofustjóra almennrar skrifstofu.
- Staða skrifstofustjóra sveitarstjórnarskrifstofu.
- Staða skrifstofustjóra fjölskyldumálaskrifstofu.
- Staða skrifstofustjóra jafnréttis- og vinnumálaskrifstofu.
Eftirfarandi kröfur eru gerðar til umsækjenda:
Háskólamenntun, víðtæk þekking á viðfangsefnum skrifstofunnar, forystuhæfileikar, reynsla af stjórnun æskileg, ágæt samskiptahæfni, góð tölvukunnátta, gott vald á íslensku máli og góð tungumálakunnátta.
Skipað er í stöður skrifstofustjóra til fimm ára frá og með 1. febrúar 2002.
Um launakjör fer samkvæmt ákvörðun kjaranefndar.
Umsóknarfrestur er til 6. janúar 2002 og skulu umsóknir berast til félagsmálaráðuneytis, Hafnarhúsi v/Tryggagötu, 150 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir ráðuneytisstjóri félagsmálaráðuneytis, en öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.
Félagsmálaráðuneytið,
11.desember 2001
11.desember 2001