Laust starf lögfræðings
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
Lögfræðingur
- Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu er laust til umsóknar starf lögfræðings. Ráðið verður í stöðuna frá 1. febrúar nk. eða síðar eftir samkomulagi.
Sú regla gildir hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess að hafa skal í heiðri jafnrétti kynjanna við ráðningar.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Arnarhváli, eigi síðar en 3. janúar 2002. Umsóknir þar sem umsækjandi óskar nafnleyndar verða ekki teknar gildar.