Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2002 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Listi yfir forstöðumenn 23. janúar 2002

Listi yfir forstöðumenn
skv. 2. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
nr. 70/1996 með síðari breytingum.


Í 1. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 með síðari breytingum eru taldir upp í 13 töluliðum þeir sem teljast embættismenn samkvæmt þeim lögum. Í 2. mgr. sömu lagagreinar segir að fjármálaráðherra skeri úr því hvaða starfsmenn falli undir 13. tölulið fyrri málsgreinar: "Forstöðumenn ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja, áður ótaldir." og birti síðan lista yfir þá starfsmenn í Lögbirtingarblaðinu fyrir 1. febrúar ár hvert.

Listinn birtur fyrir 1. febrúar 2002 er svohljóðandi:

Forsætisráðuneyti
Bankastjórar Seðlabanka Íslands
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar
Forstöðumaður Þjóðmenningarhúss

Dóms- og kirkjumálaráðuneyti
Forstjóri Landhelgisgæslu Íslands
Forstjóri Persónuverndar
Forstjóri Útlendingaeftirlitsins
Framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins 
Framkvæmdastjóri Umferðarráðs

Félagsmálaráðuneyti
Forstjóri Barnaverndarstofu
Forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins
Framkvæmdastjóri Barnaverndarráðs Íslands
Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs
Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Austurlandi
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Norðurlandi eystra
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Norðurlandi vestra
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Reykjanesi
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Reykjavík
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Suðurlandi
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Vestfjörðum
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Vesturlandi
Forstjóri Vinnueftirlits ríkisins
Forstjóri Vinnumálastofnunar

Fjármálaráðuneyti
Forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins
Forstjóri Fasteignamats ríkisins
Forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins
Forstjóri Lánasýslu ríkisins
Forstjóri Ríkiskaupa
Forstöðumaður Fasteigna ríkissjóðs
Ríkisbókari
Ríkisféhirðir

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti
Forstjóri Landspítala- háskólasjúkrahúss
Forstjóri Lyfjastofnunar 
Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins
Forstöðumaður Geislavarna ríkisins
Framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins Akureyri
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Akranesi
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Blönduósi
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Bolungarvík
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Hólmavík
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Hvammstanga
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Ísafjarðarbæ
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Patreksfirði
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Selfossi
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Siglufirði
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Suðurnesjum
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Vestmannaeyjum
Framkvæmdastjóri Heilsugæslu Reykjavíkur
Framkvæmdastjóri Heislugæslustöðvarinnar Kópavogi
Framkvæmdastjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands
Framkvæmdastjóri Sólvangs, Hafnarfirði
Framkvæmdastjóri St. Jósefsspítala, Hafnarfirði
Landlæknir
Yfirlæknir Þjónustu- og endurhæfingarstöðvar sjónskertra

Iðnaðarráðuneyti
Forstjóri Byggðastofnunar
Forstjóri Einkaleyfastofunnar
Forstjóri Iðntæknistofnunar Íslands
Forstjóri Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins
Orkumálastjóri
Rafmagnsveitustjóri

Landbúnaðarráðuneyti
Forstjóri Rannóknastofnunar landbúnaðarins
Forstöðumaður Aðfangaeftirlitsins
Forstöðumaður Hagþjónustu landbúnaðarins
Framkvæmdastjóri Lánasjóðs landbúnaðarins
Framkvæmdastjóri Veiðimálastofnunar
Landgræðslustjóri
Rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri
Skógræktarstjóri
Skólameistari Garðyrkjuskóla ríkisins
Skólameistari Hólaskóla
Veiðimálastjóri

Menntamálaráðuneyti
Forstjóri Námsgagnastofnunar
Forstöðumaður Blindrabókasafns Íslands 
Forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins
Forstöðumaður Húsfriðunarnefndar
Forstöðumaður Íslenskrar málstöðvar 
Forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar
Forstöðumaður Listasafns Íslands
Forstöðumaður Námsmatsstofnunar 
Forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra
Forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi
Forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum 
Forstöðumaður Örnefnastofnunar Íslands
Framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs Íslands
Framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna
Framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs Íslands
Landsbókavörður
Listdansstjóri Íslenska dansflokksins
Rektor Háskóla Íslands
Rektor Háskólans á Akureyri
Rektor Kennaraháskóla Íslands
Rektor Tækniskóla Íslands
Skólameistari Borgarholtsskóla
Skólameistari Fjölbrautaskólans Ármúla
Skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ
Skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands
Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands 
Skólameistari Flensborgarskóla
Skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík
Skólameistari Framhaldsskólans á Laugum
Skólameistari Framhaldsskólans í A-Skaftafellssýslu
Skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum
Skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði
Skólameistari Iðnskólans í Reykjavík
Skólameistari Kvennaskólans í Reykjavík
Skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni
Skólameistari Menntaskólans á Akureyri
Skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum
Skólameistari Menntaskólans á Ísafirði
Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi
Skólameistari Menntaskólans í Reykjavík
Skólameistari Menntaskólans við Hamrahlíð
Skólameistari Menntaskólans við Sund
Skólameistari Stýrimannaskólans í Reykjavík
Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands
Skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri
Skólameistari Vélskóla Íslands
Skólastjóri Fullorðinsfræðslu fatlaðra
Skólastjóri Listdansskólans 
Útvarpsstjóri
Þjóðleikhússtjóri
Þjóðminjavörður
Þjóðskjalavörður

Samgönguráðuneyti
Ferðamálastjóri
Flugmálastjóri
Forstjóri Siglingastofnunar Íslands
Forstöðumaður Póst- og fjarskiptastofnunar
Vegamálastjóri

Sjávarútvegsráðuneyti
Fiskistofustjóri
Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar
Forstjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins
Forstöðumaður Skrifstofu rannsóknastofnana atvinnuveganna
Forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs

Umhverfisráðuneyti
Brunamálastjóri
Forstjóri Hollustuverndar ríkisins
Forstjóri Landmælinga Íslands
Forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands
Forstjóri Náttúruverndar ríkisins
Forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
Skipulagsstjóri ríkisins
Veðurstofustjóri
Veiðistjóri

Utanríkisráðuneyti
Flugvallarstjóri Keflavíkurflugvelli
Forstöðumaður Umsýslustofnunar varnarmála
Framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands

Viðskiptaráðuneyti
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Forstjóri Löggildingarstofu
Forstjóri Samkeppnisstofnunar
Framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins




Fjármálaráðuneytinu, 23. janúar 2002

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta