Stofnað til stjórnmálasambands við Katar
Nr. 003
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
frá utanríkisráðuneytinu
Í gær, 24. janúar, undirrituðu Þorsteinn Ingólfsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og Nassir Abdulaziz Al-Nasser, fastafulltrúi Katar hjá Sameinuðu þjóðunum, samkomulag um stofnun stjórnmálasambands milli Íslands og Katar.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 25. janúar 2002.