Áætlun um uppbyggingu öldrunarþjónustu 2002-2007
Það er mat heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins að taka þurfi í notkun 400–450 ný hjúkrunarrými fram til loka árins 2007, langflest á höfuðborgarsvæðinu. Verði unnt að efla þjónustu við aldraða utan stofnana og skapa skilyrði til þess að fólk geti búið lengur á eigin heimilum má gera ráð fyrir að nægjanlegt verði að taka í notkun 20–30 ný hjúkrunarrými árlega frá árinu 2008 til ársloka 2010. Í þeirri áætlun sem hér er lögð fram er að auki gert ráð fyrir endurnýjun og endurbótum á húsnæði á ýmsum stöðum. Gert er ráð fyrir að kostnaður við framkvæmdir og rekstur nýrra hjúkrunar- og dagvistarrýma á tímabilinu 2002–2007 muni á verðlagi þessa árs nema tæpum 6,6 milljörðum kr.