Fréttatilkynning: Svar við erindi Verslunarráðs Íslands.
Nr. 3/2002
FRÉTTATILKYNNING
Viðskiptaráðherra hefur í dag svarað erindi Verslunarráðs Íslands, sem barst ráðuneytinu 1. febrúar sl. varðandi aðgerðir Samkeppnisstofnunar gagnvart olíufélögunum. Bréf viðskiptaráðherra er meðfylgjandi.
Þá hefur verið tekin saman greinargerð í viðskiptaráðuneytinu í tilefni ályktunar Samtaka atvinnulífsins þar sem því var beint til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis að fram færi skoðun á ákvæðum samkeppnislaga. Greinargerðin er meðfylgjandi.
Reykjavík, 11. febrúar 2002.