Samræmd próf í íslensku og stærðfræði haustið 2002.
Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla
Samræmd próf í íslensku og stærðfræði haustið 2002
Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd próf í íslensku og stærðfræði verði lögð fyrir nemendur í 4. og 7. bekk haustið 2002, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.
Prófdagar verða sem hér segir:
Íslenska í 4. og 7. bekk | fimmtudagur 10. október 2002 | kl. 9.00-12.00 |
Stærðfræði í 4. og 7. bekk | föstudagur 11. október 2002 | kl. 9.00-12.00 |
Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir leiðbeiningar um framkvæmd prófanna til skóla fyrir skólabyrjun í haust.
(Febrúar 2002)