Ráðherraskipti - Ríkisráðsfundur
Frétt nr.: 7/2002
Ráðherraskipti - Ríkisráðsfundur
Frá ríkisráðsritaraÁ fundi ríkisráðs á Bessastöðum í dag veitti forseti Íslands Birni Bjarnasyni lausn frá embætti menntamálaráðherra og skipaði Tómas Inga Olrich alþingismann til að vera ráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Þá staðfesti forseti Íslands svohljóðandi úrskurð um breytingu á úrskurði um skiptingu starfa ráðherra:
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra er hér með gerð sú breyting á forsetaúrskurði nr. 72 frá 28. maí 1999, um skiptingu starfa ráðherra, að Tómas Ingi Olrich fer með ráðherrastörf þau sem Birni Bjarnasyni voru falin í nefndum forsetaúrskurði og fer hann með menntamálaráðuneytið.
Ríkisráðsritari, 2. mars 2002