Forstaða Þjóðhagsstofnunar
Frétt nr.; 8/2002
Forstaða Þjóðhagsstofnunar
Að undanförnu hefur verið unnið að breyttri verkaskiptingu stofnana ríkisins á sviði efnahagsmála. Hér er um viðamikla endurskipulagningu að ræða, sem einkum lítur að því að færa verkefni Þjóðhagsstofnunar til annarra stofnana. Þegar ljóst er hvernig því verður hagað í einstökum atriðum verður frumvarp þar að lútandi lagt fyrir Alþingi.Þórði Friðjónssyni forstjóra Þjóðhagsstofnunar hefur að eigin ósk verið veitt lausn frá því embætti frá 31. mars nk. Forsætisráðherra hefur í dag sett Sigurð Guðmundsson skipulagsfræðing til að taka við embætti hans frá sama tíma til þriggja mánaða meðan unnið er að undirbúningi áðurnefndra breytinga. Sigurður Guðmundsson hefur starfað á Þjóðhagsstofnun undanfarin þrjú ár, en var áður starfsmaður Byggðastofnunar.
Í Reykjavík, 11. mars 2002