Trúnaðarbréfsafhending í Ungverjalandi
Nr. 019
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
frá utanríkisráðuneytinu
Þórður Ægir Óskarsson sendiherra afhenti miðvikudaginn 6. mars s.l., dr. Ferenc Mádl forseta Ungverjalands trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Ungverjalandi, með aðsetur í Vínarborg.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 12. mars 2002