Hoppa yfir valmynd
25. mars 2002 Matvælaráðuneytið

Yfirlýsing um Noralverkefnið

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti

(óformleg þýðing úr ensku)

Sameiginleg yfirlýsing

Noral verkefnið um byggingu álvers á Austurlandi og tilheyrandi orkumannvirkja hefur gengið vel og í samræmi við markmið sem sett voru um að ljúka undirbúningsvinnu fyrir endanlega ákvörðun eigi síðar en 1. september 2002. Undirbúningsvinnan hefur rennt frekari stoðum undir trúverðugleika verkefnisins og niðurstöður hagkvæmniathugana eru uppörvandi.

Engu að síður hefur Hydro tilkynnt samstarfsaðilum sínum að fyrirtækið sé ekki í aðstöðu til þess að taka endanlega ákvörðun varðandi áframhald verkefnisins fyrir 1. september 2002 eins og gert er ráð fyrir í sameiginlegri tilkynningu sem tengdist "Yfirlýsingu um Noral-verkefnið"*. Ástæða þessarar ákvörðunar Hydro er einvörðungu sú að fyrirtækið þarf lengri tíma til þess að meta fjárfestingarstefnu sína til næstu ára í kjölfar kaupa þess á þýska fyrirtækinu VAW. Þessi þörf fyrirtækisins fyrir stefnumarkandi endurmat tengist ekki á nokkurn hátt mati á arðsemi Noral-verkefnisins.

Í ljósi þessa munu aðilar að yfirlýsingunni halda áfram að starfa að verkefninu með það að markmiði að ákvarða endurnýjaða tímaáætlun. Þátttakendur í Reyðaráli eru sammála um að það væri ákjósanlegt að fá nýjan aðila að Reyðaráli og þannig minnka eignarhlut íslenskra fjárfesta. Í þeirri vinnu sem er framundan verður því einnig skoðuð aðkoma fleiri aðila. Sú vinna mun taka aukinn tíma, sem erfitt er að setja nákvæm tímamörk.

Þetta millibilsástand dregur fram í dagsljósið ólíka hagsmuni. Hagsmunir íslenskra yfirvalda og Landsvirkjunar hvað varðar tímasetningar fara ekki saman við hagsmuni fjárfesta í sjálfu álverinu. Það er því skilningur þeirra sem standa að Noral-verkefninu að ríkisstjórn Íslands og Landsvirkjun hafi rétt til þess að leita nýrra samstarfsaðila að verkefninu þangað til núverandi aðilar hafa komið sér saman um nýja formlega yfirlýsingu. Þetta breytir hins vegar ekki þeim áformum allra samstarfsaðila að ganga eins skjótt og verða má frá vinnuáætlun til þess að ná endanlegri ákvörðun í Noral-verkefninu. Í samræmi við þetta verður fundur í júníbyrjun þar sem staða mála verður endurmetin.

*Noral-verkefnið tekur til byggingar álvers í Reyðarfirði með allt að 400 þúsund tonna framleiðslugetu á ári, byggingar Kárahnjúkavirkjunar og annarra nauðsynlegra staðarframkvæmda. Verkefnið var skilgreint þann 24. maí árið 2000 með yfirlýsingu milli Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins f.h. ríkisstjórnar Íslands, Landsvirkjunar, Hydro Aluminium, Reyðaráls hf. (sem er í eigu Hæfis hf. og Hydro Aluminuim) og Hæfis hf. (sem er í eigu íslenskra fjárfesta).
Reykjavík, 22. mars 2002.



Sameiginleg yfirlýsing um Noral verkefnið á Word-sniði

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta