Fundur utanríkisráðherra Íslands og Kanada
Nr. 042
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
frá utanríkisráðuneytinu
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, á í dag fund með utanríkisráðherra Kanada, Bill Graham sem staddur er á Íslandi í tilefni af vorfundi NATO. Á fundinum verður m.a. rætt um framhald samningaviðræðna um fríverslunarsamning milli Kanada og EFTA-ríkjanna og um málefni Norðurskautsráðsins og formennsku Íslands árið 2002-2004.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 13. maí 2002.